25september

All svakaleg skemmtun

Jæja þá er allsvakaleg djamm helgi búinn og hún skilur eftir sig slæma heilsu í dag,Fýldur en það er nú ekki stór mál þegar maður getur skemmt sér vel kvöldið áður. Helgin byrjaði með flottu balli á Bifröst þar sem fólk kom í sínu fínasta dressi, svo á laugardaginn lá leiðin til Reykjarvíkur þar sem Björninn tók á móti mér og við fórum svo um kvöldmat til Ragga og þar hófst þessi líka góði gleðskapur, enda var ekki hægt að búast við öðru heldur en taumlausari gleða þegar Gargólýtarnir koma saman.Glottandi En ég setti inn myndir sem ég tók um helgina þannig að ég mæli eindreigið að þið skoðið þær. En núna ætla ég að fara leggjast yfir lærdóminn, svo ég geti farið snemma að sofa til tilbreytingar. Barðdalinn kveður í bili.P.s. ég þakka Ragnari fyrir stórkostlegt party  Svalur
25. september 2006 klukkan 01:29
magnús Barđdal
6 athugasemdir
21september

FUCKING YRĐLINGAR!!!

jæja helvítis ég var búinn að skrifa heila ritgerð hérna þegar það eyddist allt út hjá mérÖskrandi en allt í lagi ég byrja bara aftur, um helgina síðustu fór ég í hina árlegu hestaferð með bræðrunum Svavari og Elvari og líka Ástvaldi (sem er kominn með kjellingu) og var þessi ferð allsvakaleg, ég er alveg farinn að sjá afhverju hestamenn eru alltaf fullir á hestbaki, maður er miklu mýkri þannigGlottandi  en það er vægast sagt búið að vera mikið að gera hérna í skólanum í Borgarfyrðinum þessa vikuna og ætla ég að nota það sem afsökun mína yfir að vera ekki búinn að blogga lengi Ullandi uuu um helgina stefni ég á að renna í borg tækifærana og hitta mína menn þar því mér skilst að Sonurinn ætli að halda allsvakalegt innflutningsteiti í kastalanum.
En eitt sem ég var næstum búinn að gleyma , að í gær fór ég á kaffihúsið og það var spurningakeppni þar, sem er alltaf vikulegur atburður hér og er kannski ekki frásögu færandi en aldrei þessu vant var ég nú ekki að standa mig sérstaklega vel þangað til það kom ein spurning sem ég gat ekki klúðrað : "hver eru afkvæmi minka"? ok ég þurfti nú ekki að hugsa mig um í þetta skiptið að sjálfsögðu HVOLPAR svo var lesin upp svörin og þá sögðu þessir fáfræðingar að svarið væri yrðlingar WHAT!!! ekki nóg með það ég stóð nátturlega upp og sagðist mótmæli, að hér væri minnkabóndi á ferð ´sem þóttist vita að þetta væru hvolpar en nei það voru ALLIR ósámmála mér... ok allt í lagi þau munu sjá eftir þessu fyrr en seinna.  en svona er lífið barðdalin kveður.
21. september 2006 klukkan 00:38
magnús Barđdal
5 athugasemdir
14september

úff brjálađ ađ gera

Jæja það er eins gott að halda sig við efnið með þessa blessaða síðu, það er búið að vera helvíti mikið að gera í skólanum þessa vikuna og þegar maður situr fyrir framan tölvuna allan daginn og reynir að læra og vera duglegur þá er maður svolítið feginn að fá smá frí frá henni, en það þýðir víst ekki að maður sleppi því að blogga nei nei full time job!!! en sem sagt nú er sko alvaran tekinn við og nóg að gera, en ég er samt pínu ánægður með mig ég var að setja í mína fyrstu þvottavél áðan og það gekk bara vel, fötin komu öll út í réttum litum og stærðum þannig að ég held að þetta hafi heppnast hjá mér, magnað þegar ég var heima setti ég fötin bara í þvottakörfuna og þau voru kominn hrein,brotinn samn og fín daginn eftir inn í skáp hjá mér, það var miklu hentugraGlottandi Nei nei nú er maður orðin stór og þarf að redda þessu sjálfur. Annars er ekkert stórt að frétta nema hvað að Rannveig ætlar að koma í heimsókn á morgun og líta á höllina sem ég bý í og hvort ég sé ekki að fá næringu og baða mig(sko hún ætlar ekki að baða mig...held ég) og svoleiðis þannig að það verður fínt. ég tók nokkrar myndir í gær sem ég skelli inn við tækifæri annars byð ég að heilsa í bili.
14. september 2006 klukkan 03:07
magnús Barđdal
3 athugasemdir
11september

og ţá tekur alvöran viđ

jæja nú er ég kominn aftur í Bifröst eftir að ég fór heim um helgina, og fór ég í glæsilegt 40 ára afmæli hjá kristjáni í Barmahlíðini sem var fullkomið í alla staði að mínu mati, svo er nú líka alltaf gott að koma heim og fá gott að borða og hitta fólkið og svona BrosandiEn á morgun hefst lærdomurinn hér í skólanum eftir heila viku af djammi og gamani, en það er nú samt ágætt ég held að ég hafi aldrei áður verið spenntur að byrja læra en svona er þetta (það mætti halda að maður væri að eldast).
ég heyrði aðeins í Þórði um helgina og vrum við að tala um að ég ætti nú að fara íhuga að kíkja í höfuðborgina bráðum og líta á þessa menn sem þar búa og taka kannski smá djamm með börnum borgarinnar 8) verð að finna góða helgi í það.
jæja ekkert meira í bili Maggi out!!! 
11. september 2006 klukkan 05:43
magnús Barđdal
1 athugasemd
08september

Blautur dagur

jæja nú er ég nýkominn úr sturtu og búinn að vera úti í allan dag í ratleik í f... rokki og rigningu shit hvað ég var orðin blautur. en björtu punktarnir eru nú samt þeir að þetta gerði mig þyrstan í kaldan Lager (alltaf gott að eiga lager) því það var hörku djamm í gær á Hredda (hreiðarvatnsskála) hjá Lagadeildini og var ófáir sopparnir af bjórnum drukkið.... en þar eru þeir með algjöra snilld í gangi maður fær alltaf 5 hvern bjór frían sama hvenar maður kemur t.d ég drakk 4 bjóra þar í gær þannig að ég á inni frían næst þegar ég kem, sem er snilld Svalur 
í kvöld er nú samt aðaldjammið : ball á kaffihúsinu þannig að maður verður að vera vel hvíldur fyrir svoleiðis samkomu. En á morgun liggur leiðin heim og verður það ótrúlega gott að geta slappað af á Hotel mömmu en ég nenni ekki að blaðra meira í bíli
Maggi out::
08. september 2006 klukkan 22:56
magnús Barđdal
1 athugasemd
06september

ţynnkudagur

Ég verð að viðurkenna að það var helvíti erfitt að vakna í morgun og rífa sig á fætur, þannig að dagurinn í dag er 3. skóladagurinn og 1. dagurinn sem ég mætti of seint í skólan, eða kl. 10. En gærkveldið var algjör snilld það var nýnemakvöld í skólanum og frír bjór í boði skólafélagsinsSvalur og var ég held ég að skríða heim milli 3 og 4 og alls ekki í ástandi til að fara vakna upp eftir nokkra tíma í skólan.
En ég setti inn myndir af herberginu mínu í gær svo þið getið séð höllina sem ég bý í, á eftir set ég inn myndir sem ég tók í gær af nýnemakvöldinu, þannig að það er nú að lifna yfir þessari blessaðri síðu hjá mér.
nenni ekki að blaðra meira í bili

06. september 2006 klukkan 21:02
magnús Barđdal
1 athugasemd
05september

kallin kominn međ Blogg.

jæja þar sem að ég er nú fluttur í borgarfjörðin eða nánartiltekið í Háskólan bifröst þá fannst mér rétt að koma mér upp svona blogg síðuSvalur hvort einhver les hana skiptir kannski ekki öllu máli en þetta verður ágætis dægrardvöl fyrir mig allavegana svona meðan maður er að komast inn í allt hér óg kynnast nýju fólki og svona...
Uuu í dag er annar skóladagur hjá mér og er þetta nú allt á léttu nótunum svona til að byrja með en í kvöld verður nýnemakvöld og þá verður nú slett almennilega úr klaufunum,...og hlakkar mig mikið til þess.
Er að hugsa um að taka myndavélina með mér í kvöld og get þá smellt myndum á síðuna og gert eitthvað sniðugt.
en þetta er nóg til að byrja með blogga seinnaGlottandi
05. september 2006 klukkan 17:24
magnús Barđdal
Engin athugasemd

Könnun

Eru rauđhćrđir Karlmenn yfirburđa fallegri en ađrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur