23nóvember
já kæru lesendur það er eitt gott við erfiði og almenn leiðindi og það er þegar þau eru búinn!!!!! núna var ég að koma úr síðasta prófinu mínu sem var munnlegt lögfræði verkefni og var ég alveg nett stressaður fyrir því, en það gekk bara vonum framar þannig að ég get varla hamið mig að ánægju yfir að þetta sé búið.

eins og ég sagði í síðasta bloggi þá samdi ég við Hreddan um að halda partý í kvöld þar,´ég senti öllum skólanum e-mail og ekki nóg með það heldur ákvað skólayfirvöld að loka kaffihúsinu hér kl 5 í dag þannig að allir enda upp á hreddanum

. svona á þetta að vera rannveig kemur á eftir og ætlar að djamma með mér hérna og svo er það bara skagafjörðurinn á morgun þar sem ég hef boðið drengjunum í Víðihlíðina og ætlum við að rifja upp gamlar stundir þar yfir köldum bjór og President (blanda sem klikkar seint). en já varð bara að láta ykkur vita af gleði minni þessa dagana.
Barðdalin kveður á síðasta degi hans sem 20 ára gutti....
20nóvember
já núna er nákvæmlega 78 mínútur þangað til fyrsta prófið byrjar, og ég get ekki annað en sagt að ég er orðin nett stressaður, sem er samt engin ástæða til því í versta falli fell ég bara, verri hlutir hafa nú gerst. En að sjálfsögðu er það ekki á stefnuskránni
. já ég verð í prófum núna fram á fimmtudag og þá hefst gleðin félagi.... ég er búinn að fá Hreddann (Hreiðarvatnsskálan) og er verið að græja tilboð á barnum og læti, svo er það bara senda póst á allan skólan (bókstaflega allan) og bara partý... þetta verður geðveigt. Föstudagurinn er nú engin venjulegur dagur, þjóðarhátið myndu sumir segja, en fyrir 21 ári síðan kom í heiminn drengur svo rauður og fagur
. Og þá er það Víðihlíð 7 í Skagafyrði sem verður fyrir valinu sem samkomustaður villtra Gargólýta og purrandi Bling-Bling vitleysinga, ásamt fleirum hátíðargestum. þannig að gott fólk sem mig þekkja og þykir vænt um takiði föstudaginn frá (ykkur verður boðið vill enga party crashers).
bestu kveðjur í bili.
17nóvember
13nóvember
já ég ákvaða á föstudaginn að skunda í Skagafjörðinn, en þar sem Nissaninn gékk ekki heill til skógar þá fékk ég að fljóta með krökkum úr Bifröst sem voru á leiðinni til Akureyrar, þar sem eigandi bílsins var kvennkyns þá tók ég það að mér að aka. en þessi heimferð sem venjulega tekur bara 2 tíma á góðum degi tók í þetta skiptið 5 og hálfan tíma

. og til þess að bæta gráu ofan á svart þá var heilsan ekki mjög góð eftir allsvakalega skemmtun á fimmtudagskvöldið, en þá var halloween skemmtun hjá okkur í lagadeildini sem var alveg frábær. en helgin var bara fín, ósköp róleg, ég enaði sem driver fyrir brennivínssjúku vini mína sem kunna sér ekki hóf þegar kemur að drykkju (eitthvað annað en ég ).
en núna eru prófin að bresta á í næstu viku þannig að ég verð að viðurkenna að það er smá stress að koma yfir kallinn, en ég vona að það endi ágætlega.
ætla að henda inn myndum síðan á fimmtudaginn sem fyrst, mæli með að þið kíkjið á það.
08nóvember
jæja nú erum við nokkrir strákar hér við skólan búnir að stofna nýtt íþróttarfélag, Krullufélag háskólans á Bifröst. ég er einn af 4 mönnum í stjórn félagsins og ætlum við að æfa þessa göfugu íþrótt á Hreðarvatni þegar það frýs. fyirir þá sem ekki vita þá er krulla það sama og curling.
við ætlum að virkja aðra háskóla til að taka þessa íþrótt upp og halda mót hér á Hreðarvatni. einnig sjáum við fram á það að við þurfum að fara í "vísindaferðir" til Reykjavíkur og athuga aðstæður þar. en ég blogga meira seinna vildi bara deila þessu með ykkur.
04nóvember
Já ég og félagarnir erum búnir að setja saman sigurlið fyrir hið mikla Molduxa mót sem haldið er árlega milli jóla og nýárs á Króknum og finnst mér ég verða að tilkynna leikmannavalið þetta ár:
Kristinn Loftur
Ragnar Freyr (sonurinn)
Gunni Þór (Tungutröllið)
Magnús Baðdal
Óli Barðdal
Einar Akureyringur (mágur minn)
Björn Svavar málarameistari
Einar (litli bróðir Kidda)
eins og sjá má er valinn maður í hverja stöðu og vonandi að menn hætti ekki við að koma með lið í mótið þótt svo að við verðum þar, ég meina það er aðalmálið að vera með en ekki að vinna.
ef fólk vill koma með hugmyndir af nafni á liðinu þá eru þær hugmyndir vel teknar.
02nóvember
Já ég hef oft verið sagður gleyminn maður, en ég er að standa mig að verki að ég bara gleymdi að ég er með blogg síðu

já svona getur maður verið utan við sig í amstri námsins, en núna er semsagt farið að líða að prófum svoleiðis að ekki léttist þetta alveg strax en það styttist. ég var líka að skoða próftöfluna og ég er búinn í prófum 23. nóv sem er dagurinn á undan 24.nóv og allir glöggir menn vita nú hvaða hátíðardagur það er. svoleiðis að þið megið búast við allsvakalegu partý um þá helgina bæði í Bifröst og Víðihlíð 7. ALVEG SVAKALEGT!!! en það er ekki frá mörgu að segja nema ég fór í borg tækifærana í gær og fór í Hæstarétt (maður verður að skoða tilvonandi vinnustaðinn

) það hafði reyndar ekki hátt skemmtanagildi en fróðlegt samt sem áður. ég ætla að reyna muna að ég hafi blogg í framtíðinni og vera duglegri að bulla eitthvað.
Barðdal kveður.
18október
jæja ég fór heim um helgina í Skagafjörðinn og það þarf nú ekki að taka það fram að það var hrein sæla eins og alltaf

en ég var bara að fatta það að önnin er orðin meira en hálfnuð úff það er ekkert smá sem þetta lýður hratt maður. en ég er líka alveg farinn að finna það að skólinn er bara að verða erfiðari og meira og meira að gera, sem er bara afþví góða því öðruvísi lærir maður víst ekki.

ég kemst samt ekki heim næstu helgi vegna þess að ég þarf að vera hér í Borgarfyrðinum að læra og missi þessvegna af Á MÓTI SÓL

en ætli maður hafi ekki gott afþví að sleppa einni djammhelgi. en það er frá einhverju fáu að segja eins og staðan er í dag nema að ég ætla henda inn myndum síðan í afmælinu hjá Valda á eftir.
Barðdalinn kveður.
13október
Komiði sæl, það er merkilegt hvað fólk getur átt margt sameiginlegt, t.d. það geta allir gert grín af rauðhærðum, það er bara svona eitthvað alþjóðlegt. Ég var samt alveg orðin vanur því heima að hitta menn eins og Jóhann á Reynisstað og í stað þess að segja “nei blessaður” þá sagði hann meira kannski”HANN ER RAUÐHÆRÐUR HAHAHA” því þetta tvennt þýðir greinilega það sama. En í morgun sat ég í rólegheitum mínum í fyrirlestri og var hárlitur minn kannski ekki það efsta í huga mínum (aldrei þessu vant) þegar félagi minn finnur síðu á veraldarvefnum sem heitir international gingerkids foundation sem eru baráttu samtök fyrir rauðhærða, þeirra aðalslagorð er “Rauðhærðir eru líka fólk” og þar sem þetta eru hjálparsamtök þá er þeirra aðalmarkmið að finna lækningu við rauðhærðunni. Þetta finnst mér ekkert sniðugt en öllum sem sátu í kringum mig fannst þetta sniðugt!!! En eins og móðir mín segir “öfundsýkin kemur í mörgum myndum” svoleiðis að þetta hefur enginn áhrif á mig. En staðan á mér er þannig að ég ætla að klára skólann í dag og svo er það bara skagafjörðurinn. Ég blogga helgarafrekinn hér strax eftir helgi Rauðhaus kveður!!
07október
jæja það er aldeilis kominn tími á að maður fer að gera eitthvað á þessari síðu hérna, en ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að skrifa neitt er að tölvan mín er búinn að vera með vírus sem ég hef ekki getað losna við í viku þannig að það var lítið hægt að kíkja á veraldarvefinn síðustu daga. um helgina verð ég bara í Bifröst því ég þarf a læra fyrir próf sem ég er að fara í á mánudaginn og ég veit að ef ég hefði farið heim þá hefði ég ekki nennt að fara læra. en í gær sendi ég öllum hér í skólanum mail að það væri partý í Hreiðarvatnsskála og það kom bara slatti af liði og það var helvíti gaman. í dag er samt bara læra læra læra og ekkert fyllerí. hef ekki frá miklu að segja í bili.
Barðdalinn kveður!!