23september

komin timi til ad dusta rykid af blogginu!!!

Jaeja nuna held eg ad eg verdi ad byrja blogga aftur eftir langt vor, sumar og haust fri fra Bardal blogginu. Eg er semsagt komin i Germany, (Lüneburg öllu heldur) og tad er alveg frabaert. Vid erum med okkar eigin ibud sem er fin og rett hja midbaenum sem er MJÖG gott. Eg komst ad tvi tegar eg kom her i baein ad tessi baer hefur hlutfalslega flesta bari og skemmtistadi midad vid ibuafjölda, i Germany. Ja kaeru lesendur eg vissi alveg hvad eg var ad gera tegar eg sotti um ad fara til Lüneburg. Svalur I gaer kom Oli brodir i heimsokn og Pennille, eg for med teim i baen og svo forum vid i morgun i hamburg og vorum tar i allan dag, sem var mjög gaman, 27 stiga hiti og svona. Svalur Tessa dagana er eg a tysku namskeidi sem er 3 vikur og eftir tad byrjar namid hja mer, tannig ad ef eg fer ovart ad blogga a tysku ta er tad einfaldlega vegna tess ad eg raed ekki vid mig. Madur er komin med tad naudsynlegasta strax sem er EINE GROSSE BIER!!! tetta laerdi eg a fyrsta kvöldinu og hef turft ad nota ödru hverju i mikilli neyd.
en tetta er nu bara 1. bloggid mitt i langan tima, og verda tau fleiri i nainni framtid en sökum netleysis gengur haegt ad blogga.

bless i bili.
23. september 2007 klukkan 21:19
magnús Barðdal
8 athugasemdir
23mars

ÍLLU ER BEST AF LOKIÐ

Jæja nú er þessu blessaða prófaviku (lokapróf) að klárast, ég fer í síðasta prófið mitt eftir klukkutíma og er það munnlegt próf í lögfræði. ég ákvað að hætta að læra fyrir það núna og reyna gera e-ð til að minnka stressið. En kvöldið  er það sem ég er að bíða eftir (fyrir utan helvítis prófið) þá er próflokadjamm á Hreddanum. En 2 vörubílstjórar ætla að koma við hér hjá mér og taka þátt í gleðinu, jú Gunnar Smári og spandex kvikindið ætla að koma og djamma með okkur hér. Kvöldið byrjar í betri stofuni á vistinni en þá ætlum við vistarfólkið að elda læri og tilheyrandi. Eftir það hittast allir saman í skólanum í grímubúningum hér í skólanum því það er grímuball á Hreddanum um kvöldið og í skólanum verður ólimpíuleikar ölvaðra og léttar veitingar í boði skólafélagsins ;-) svo verður haldið á hreddan og dansað og djammað framm eftir morgni. þetta er skotheld dagskrá og sé ég fram á gott kvöld. að sjálfsögðu verð ég með mindavélina og reyni að ná þessu á filmu öllu saman. svo er það fjörðurinn fagri á morgun þar sem ég ætla að vera um helgina. en eins og ég segi þá koma inn myndir í næstu viku.
23. mars 2007 klukkan 15:47
magnús Barðdal
5 athugasemdir
08mars

VARÚÐ 2 villtir folar og bara ég 1 við stjórnvöldin....!!!!

já nú er ég að læra fyrir síðasta próf vikunnar Brosandi jibbíííí en þetta er búinn að vera strembin vika, alveg brjálað að gera. En á morgun fer ég yfir heiðar og gegnum dali og er stefnan sett á Skagafjörð á Norðurlandi vestra nánar tiltekið á Sauðárkrókinn gamla og góða. Ég mun ekki ferðast einn míns liðs því með mér í för verða ekki ómerkilegri menn en "Sverrir síkáti" og "Aron dangerues" ég get ekki sagt að við komum í friði því við ætlum að mála bæinn rauðan bókstaflega..... nei nei auðvitað ekkert rugl. Fyrsta stopp í ferðini verður á óðalssetrinu Reynisstaðir hjá Jóhanni Helgasyni og ætlar hann að sýna okkur setrið og nýjan mjólkur búnað sem vekur áhuga okkar Bifrestinga. Svo er ferðini heitið upp á krók og verður þá litið á búið mitt og sýni ég þeim alvöru minka pörun grrrrr... Já það má segja að þetta verði landbúnaðarferð. En aðalstefnan er sett á Laugardagskvöldið því þá ætlum við að fara í bæinn og ég sýni þeim hvernig skagfingar skemmta sér. Svona er staðan á mér eins og er alveg stórgóð. 
Konan mín kom í kína í dag og er alveg svaka stuð á þeim stelpum. 
blogga seinna.
 
08. mars 2007 klukkan 22:08
magnús Barðdal
1 athugasemd
06mars

BIfröst vs. Leiknir

já nú er Þriðjudags kvöld og ég er kominn upp í rúm kl. 22:45 þetta sýnir það að maður er að eldast, allavega er ég vanur að gera e-ð annað en að liggja uppi í rúmi og blogga á þriðjudagskvöldum. Nei nei þetta er stórfínt, fór í 2 próf í dag og held að ég hafi bara nelgt þau bæði (allavega annað þeirra). ég er á fullu að skippuleggja leik sem á vera næsta Þriðjadag ; Bifröst vs. Leiknir í körfubolta. þarna er Kristinn Loftur Einarsson fremstur í flokki hjá Leikni og sé ég fram á stórgóðan leik. ég mæli með því að fólk sem er á höfuðborgarsvæðinu kíkji á þennan leik. Stefnan er að fara í fjörðin fagra um helgina og líta á lífið þar (svona taka eina afslöppunar helgi fyrir prófin). þannig svona er planið hjá mér næstu daga, frá fágu að segja í bili. blogga meira næst.
06. mars 2007 klukkan 22:51
magnús Barðdal
2 athugasemdir
03mars

stórgóð skemmtun

jæja ég skrapp í borg óttans í gær (Föstudagur) og fór ég á Skagfirðingakvöld í Players sem var alveg stórgóð skemmtun þótti mér. En það var nú ekki minna veldi á mér en það að ég gisti bara á Hóteli í nótt, en tengdó splæsti á mig og Rannveigu svona síðustu nóttina áður en hún fer út í útlandið stóra. Ég setti inn myndir frá kvöldina hér á síðuna og getið fundið þær undir linknum "myndir á fotk" hér uppi í hægra horninu. það er ekki margt að segja frá þessu góða kvöldi nem ég fór til Ragnars á Flókagötuni og má segja að ég hafi ekki verið einn míns liðs því það var húsfyllir hjá honum og var fólk í öllum álmum í húsinu. Eftir að hafa verið þar við fallegan undirleik Eymars og söng gestanna fórum við á Players þar sem heitustu bönd landsins léku undir dansi. hef ekki frá mörgu fleira að segja nema að ég er mættur á Bifröst og þykist vera að læra því það er að bresta á próf-hátíð hér og best að vera klár í slaginn.
kveðja Maggi með 100% rautt hár. 
03. mars 2007 klukkan 22:27
magnús Barðdal
2 athugasemdir
26febrúar

I´m back baby...

Jæja nú er best að fara reynan blogga eitthvað aftur svo maður fái nú ekki á sig nöfn eins og Frímann eða e-ð álíka slæmt. En staðan á mér er nú bara sú að ég er á fullu í skólanum og nú er að koma sá tími á önnini að maður þarf að fara í bretta upp ermar og lesa úr sér augun. Ég hef annars verið nokkuð duglegur að fara heim um helgar núna upp á síðkastið, ég verð að nýta tíman til að vera með konunni, en hún er að yfirgefa mig  næstu helgi því húner að fara skoða heiminn og áætlar sér 2 mánuði í það með Svölu vinkonu sinni. En ég ætla ekki að starta þessari blogg vertíð minni með meiri látum og skrifa meira næst sem verður vonandi ekki eftir langan tíma.
Barðdalinn kveður að sinni.Svalur
26. febrúar 2007 klukkan 21:59
magnús Barðdal
Engin athugasemd
14febrúar

ný síða

jæja ég er svo latur að blogga þannig að ég ætla að taka mér smá frí frá blogginu, en við erum með síðu á vistini á sem ég mæli með. 


www.vistin.bloggar.is 






kveðja Maggi 
14. febrúar 2007 klukkan 20:47
magnús Barðdal
Engin athugasemd
08janúar

og þá hefst gamanið!

Jæja nú er ég kominn aftur á Bifröst eftir helgarfrí á Sauðárkróki, og nú á morgun hefst þetta fyrir alvöru. Sem er nú bara gott. Ég fékk far með honum Bjössa kallinum, því bíllin minn keyrir ekki heill til skógar eins og maðurinn sagði. en þegar ég og Bjössi vorum að detta í Víðihlíð þá fengum við bláu skelfilegu ljósin á okkur, og það voru lögreglu félagar tveir á ferð og þótti þeim Bjössi vera flýta sér full mikið, þannig að þeir gáfum honum væna segt og báðu hann að fara sér hægar, sem hann gerði.En núna í vikunni sem er að hefjast þarf ég að finna mér eitthvað sniðugt land sem ég ætla að fara í skiptinám til næsta haust, þannig að það er bísna spennandi, eins og staðan er á mér í dag er ég að velta því fyrir mér að sækja um til Grikklands eða Ítalíu, en ég á eftir að kynna mér þetta betur. hef nú ekki frá mörgu að segja í bili, kem með flotta fréttir næst.
kveðja maggi
08. janúar 2007 klukkan 06:43
magnús Barðdal
9 athugasemdir
03janúar

blogg jólafríið búið!!!!!

jæja nú er ég búinn að taka gott frí frá blogginu yfir jólin og komin tími til að fara gera e-ð að viti. Jólafríið var nú ótrúlega gott og verð ég að telja fram það helsta sem ég gerði af mér í því. Ég mætti heim á miðvikudagskvöld og var settur í minkabúið á fimmtudagsmorgun enda sagði föður minn að ég væri búinn að leika mér nógu lengi og komin tími til að gera eitthvað. Ég gat ekki verið annað en sammála honum, enda engin jól án þess að fara í minnkanaGlottandi. Nú svo var það aðsjálfsögðu skatan á Þorláksmessu, sem var að núna í ár hjá svavari bróðr og var hún alveg sérstaklega góð í ár (eða eins góð og skata getur verið). aðfangadagur vorum við hjá Selmu systir og var það bara fínt. Ég get ekki talið upp það sem ég gerði í jólafríinu nema nefna annan í jólum; já þá var molduxamótið í körfubolta haldið og við karlmennirnir í fjölskyldunni settum saman í lið og það þarf kannski ekki að taka það fram en auðvitað unnum við þetta mót með yfirburðum. Þetta gaf okkur sko tilefni til að fagna og gerðum við það á balli með von á Mælifell um kvöldið. 3 næstu dagar voru ekki líkamlega góðir, því ekki vorum við i eins góðu formi og við héldum, en ég get bara sagt það að maður átti erftt með svefn og allar hreyfingar voru KVÖL. en svo komu áramótin og þá var nú djammað, við vorum nú ekki nema 28 í víðihlíðini í ár svoleiðis að manni leiddist nú ekki mikið, svo komu félagarnir um kvöldið og toppuðu kvöldið með gullfallegum söng, svona rétt áður en við fórum í bæinn. svona var þetta í frekar stórum dráttum hjá mér um jólin og skal ég blogga meira seinna, því þetta er orðið svo langt.
barðdalinn kveður.
03. janúar 2007 klukkan 20:50
magnús Barðdal
Engin athugasemd
29nóvember

All svakaleg helgi

Ég verð að byrja á því að þakka ykkur fyrir góða skemmtun á fimmtudeginum, föstudeginum og laugardeginum.... úff þetta var löng, góð og erfið helgi, en að sjálfsögðu stóð GÓÐ uppúrafþessu.
ég var að koma úr Reykjavíkinu núna, fór með verkefnahópnum mínum þangað í morgun og vorum við á fundi með lögfræðing sem er kannski ekki frásögufærandi nema það að klukkutímin hjá honum kostar litlar 19.000 kall!!!$$$$$$ já það er ekkert smá, en við fengum það nú samt frítt (gott að hafa sambönd) en staðan á mér er allavega þannig að er nýbúinn að ná mér eftri erfiða djamm helgi, og er kominn á fullt í verkefnavinnu sem er um Bubba Morthens og hans vesenGlottandi, svo verð ég búinn í skólanum svona milli 11. og 15 des. og þá er það bara heim í heiða dalinn. en það verður ekki meira í bili byð að heilsa.

ps. Staðarskála/málverkið/beljumyndin/afmælisgjöfin er kominn upp í herbergið hjá mér og lýsir upp höllina hjá mér, takk strákar Svalur 

29. nóvember 2006 klukkan 01:22
magnús Barðdal
3 athugasemdir

Könnun

Eru rauðhærðir Karlmenn yfirburða fallegri en aðrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur