rauðhærðir eru líka fólk!!!
Komiði sæl, það er merkilegt hvað fólk getur átt margt sameiginlegt, t.d. það geta allir gert grín af rauðhærðum, það er bara svona eitthvað alþjóðlegt. Ég var samt alveg orðin vanur því heima að hitta menn eins og Jóhann á Reynisstað og í stað þess að segja “nei blessaður” þá sagði hann meira kannski”HANN ER RAUÐHÆRÐUR HAHAHA” því þetta tvennt þýðir greinilega það sama. En í morgun sat ég í rólegheitum mínum í fyrirlestri og var hárlitur minn kannski ekki það efsta í huga mínum (aldrei þessu vant) þegar félagi minn finnur síðu á veraldarvefnum sem heitir international gingerkids foundation sem eru baráttu samtök fyrir rauðhærða, þeirra aðalslagorð er “Rauðhærðir eru líka fólk” og þar sem þetta eru hjálparsamtök þá er þeirra aðalmarkmið að finna lækningu við rauðhærðunni. Þetta finnst mér ekkert sniðugt en öllum sem sátu í kringum mig fannst þetta sniðugt!!! En eins og móðir mín segir “öfundsýkin kemur í mörgum myndum” svoleiðis að þetta hefur enginn áhrif á mig. En staðan á mér er þannig að ég ætla að klára skólann í dag og svo er það bara skagafjörðurinn. Ég blogga helgarafrekinn hér strax eftir helgi Rauðhaus kveður!!
13. október 2006 klukkan 14:55
magnús Barðdal
magnús Barðdal
Vona að þú sért búinn að skrá þig í samtökin.
Kv, Margrét