úff brjálað að gera
Jæja það er eins gott að halda sig við efnið með þessa blessaða síðu, það er búið að vera helvíti mikið að gera í skólanum þessa vikuna og þegar maður situr fyrir framan tölvuna allan daginn og reynir að læra og vera duglegur þá er maður svolítið feginn að fá smá frí frá henni, en það þýðir víst ekki að maður sleppi því að blogga nei nei full time job!!! en sem sagt nú er sko alvaran tekinn við og nóg að gera, en ég er samt pínu ánægður með mig ég var að setja í mína fyrstu þvottavél áðan og það gekk bara vel, fötin komu öll út í réttum litum og stærðum þannig að ég held að þetta hafi heppnast hjá mér, magnað þegar ég var heima setti ég fötin bara í þvottakörfuna og þau voru kominn hrein,brotinn samn og fín daginn eftir inn í skáp hjá mér, það var miklu hentugra
14. september 2006 klukkan 03:07
magnús Barðdal
magnús Barðdal