wazz´going on.....
Jæja kominn tími til að láta vita hvað hefur drifið á daga mína síðastliðnar vikur. Tja hvar skal byrja, ég kom heim frá Þýskalandi rétt fyrir jól með söknuð í hjarta enda hef ég ekkert nema gott frá þjóðverja landinu að segja. Nú er ég kominn upp á Bifröst og er vægast sagt brjálað að gera... sem er bara gott því manni leiðist ekki á meðan. Síðastliðna helgi fór ég heim á krók með það eitt í huga að taka og viðra fjórhjólið í snjónum. sú ferð var góð að mestu leiti nema að ég endaði upp á sjúkrahúsi eftir hana með brotna hendi sem er ekki alveg jafn gott... en breytir því ekki að þetta var góður dagur í fyrðinum fagra. Það sem er mér eftst í huga þessa daga er námið og skrif á BS ritgerð sem nálgast hraðar en maður gerir sér grein fyrir og ekki mikið eftir af þessarri skólagöngu minni hér í Bifröst (í bili allavega) nú er bara að klára það littla sem eftir hér í Borgarbyggð og svo tekur lífsins skóli við. hef kannski ekki frá mörgu að segja í bili, en ég mæli endilega með að fólk kíkji inn á vistin.bloggar.is og lesi síðustu færslu sem Aron gerði um helgina.Bless í bili.
22. janúar 2008 klukkan 16:07
magnús Barðdal
magnús Barðdal