Allt gott tekur sinn endi

Jæja þá er síðasta vikan mín hér í Þýskalandinu runnin upp. Á föstudaginn 21. desember á ég pantað flug heim á klakann. Nú á ég bara eftir að pakka saman dótinu mínu, skila af mér einni ritgerð og fara í lokapróf fyrir föstudaginn, þannig að það er nóg að gera síðustu daganna hér í Luneburg. Að sjálfsögðu reynir maður að skipuleggja tíman þannig að maður nái einu kvöldi enn með köldum þýskum bjór.
Jæja hef ekki frá mörgu að segja á svona sorgarstundu nema að sjálfsögðu að það verður gott að koma heim í jólasteikina hjá mömmu gömlu og hitta familiíuna.

Jólakveðjur Magnús
17. desember 2007 klukkan 09:20
magnús Barđdal
Bjössi skrifar ...
hlakkar til að fá að heyra allar sukk sögurnar.....
17. desember 2007 klukkan 19:36
Aron skrifar ...
úff ég öfunda þig nú ekki að þurfa að pakka niður, það er svo hundleiðinlegt maður. En gangi þér annars bara vel í prófinu og við sjáumst síðan bara hressir á næsta ári.
Gleðileg jól
19. desember 2007 klukkan 17:47

Skrifa athugasemd

Könnun

Eru rauđhćrđir Karlmenn yfirburđa fallegri en ađrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur