Næstum því þrítugur í Germany
Jæja, kominn tími til að láta heyra frá sér. Ég náði þeim merka áfanga að vera 22 ára á síðasliðnum laugardegi.. og það er nú ekki svo lítið.. en ég læt það nú ekki spyrjast úr að ég eigi afmæli án þess að halda upp á það. Ég bauð rétt rúmlega 30 manns frá 11 mismunandi löndum í veisluna þar sem ég bauð upp á fljótandi kvöldmat og eftirrétt í skotglösum. Fólkið kom stundvíslega klukkan 8 eins og þeim var sagt ( sem er mjög ólíkt íslendingum) ég hafði ákveðið það að við þyrftum að vera farinn út kl. 12 í síðastalagi þar sem ég bý í fjölbýlii og eru nágrannarnir með gott jafnaðargeð ALLTAF Í VONDU SKAPI!!! en það breyttist víst aðeins og var ég að skríða í bæinn rúmlega 3 um nóttina. En veislan tókst vel fyrir utan að nágrannakona mín kom út í glugga um nóttina þegar gestirnir stóðu fyrir utan og ræddu um heimsmálin og skvetti vatni á þá líkt og um flækings ketti væri um að ræða
en það var nú bara fyndið (eins og flest annað á þessari stundu) Hef ekki frá mörgu að segja nema að það styttist óðum í að maður haldi aftur til heimalandsins í jólastemminguna, sem verður mjög gaman.
hér eru myndir frá afmælinu MYNDIR
29. nóvember 2007 klukkan 15:13
magnús Barðdal
magnús Barðdal
kv sesselja