Becks verksmiðjan



Jæja á Laugardaginn fór ég í Becks verksmiðjuna, það var helv... gaman að sjá hvernig bjór er gerður og ég er ekki frá því að eftir að ég veit hversu mikil vinna er lögð í þennan líka einstaka drykk þá bragðast hann bara betur Brosandi. Þegar við komum heim frá Bremen þar sem Becks verksmiðjan er lág leiðin á Írska barinn hér í Luneburg þar sem þyrstir skyptinemarnir voru samankomnir. Á sunnudaginn vaknaði ég eldhressSaklaus til að fara til Hamburg og taka á móti mömmu og pabba, vð vorum allan daginn í Hamburg, sem var mjög gaman (sérstaklega afþví að allar búðir voru lokaðar). Mamma og pabbi voru svo hjá mér í 3 daga og ég held að þau hafi nú bara verið nokkuð sátt við dvölina, svona fyrir utan það að við bjóðum ekki upp á heitt vatn þessa stundina, en ég meina hver þarf heitt vatn. Þau fóru svo til Kaupmannahafnar í morgun þar sem þau ætla að hitta Selmu.
Á morgun er svo Halloween, og verður svaka partý um allan bæ, það verður alveg geðveikt, er reyndar ekki alveg búinn að ákveða búningin, er að hugsa um að vera írskur drykkjusjúklingur Glottandi.

En það er nú reyndar ekki mikið að frétta af mér.
setti inn myndir frá Becks og Írska barnum hér : MYNDIR
30. október 2007 klukkan 10:52
magnús Barðdal
Aron skrifar ...
hehe já það er rétt hjá þér, hver þarf heitt vatn eiginlega???
Ég held að það fari þér bara vel að vera írskur drykkjusjúklingur. Passaðu þig bara að lifa þig ekki of mikið í hlutverkið
31. október 2007 klukkan 02:52
Oli Barddal skrifar ...
Gaman af tessum myndum, bara ny kominn ur klippingu, tu hefur sem sagt lagt i tetta, eda lestu mømmu klippa tig. En annrs eg var ad pæla med leikinn eru tid kominn med mida. Eg get ath. tetta held tad se uppselt.
En vid tølumst vid kvedja Oli
31. október 2007 klukkan 19:16
Maggi skrifar ...
Hehe já ég tók áhættuna á að láta þýskarana klippa mig, ég fylgdist nú samt með þeim sópa upp hárin og henda þeim, ég veit alveg hversu mikils virði svona alvöru rauð hár eru, Oft lent í því að klippararnir reyni að sópa þeim saman í poka og ætla sér að selja þau.
01. nóvember 2007 klukkan 12:48

Skrifa athugasemd

Könnun

Eru rauðhærðir Karlmenn yfirburða fallegri en aðrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur