
Jæja þá er víst kominn tími á að láta vita hvað maður er að gera að sér hérna í útlandinu. Á fimmtudaginn fór ég ásamt fylgdarkonum 2 til Danmerkur þar sem ég heimsótti Óla bróðir og frú og hitti Sesselju systir sem var í heimsókn, ásamt að sjálfsögðu að hitta Möggu frænku og Helga. Þetta var alveg ljómandi menningarferð og mjög gaman að hitta fólkið. Ég set myndir inn frá DK. við fyrsta tækifæri.
það sem er framundan er nokkuð margt, á laugardaginn fer ég í bæ hérna rétt hjá sem heitir Bremen og er ég að fara í BECKS verksmiðjuna, það er nú lágmark að maður fái að sjá hvernig lifibrauðið sitt er búið til
. Á sunnudaginn koma svo mamma og pabbi í stutta heimsókn, og verður það mjög gaman að geta sýnt þeim hvernig maður býr. Búinn að splæsa í upplásið king size hjónarúm þannig að dvölin í Spangenbergstrasse 29 verður betri en nokkuð hótel. Þetta er semsagt það sem er á stefnuskránni fyrir næstu viku, svo er ég búinn að bóka ferð til Berlin í næsta mánuði og fæ ég þá að sjá það sem eftir er af verkum nastistana. En allavega er allt gott að frétta frá Luneburg í þýskalandi (þó það sé að kólna). þannig að ég hef ekki mikið að segja í bili.
bless í bili.
Nokkrar heimskulegar spurningar sem ég hef fengið frá Þjóðverjum um Ísland :
- Er það satt að vegna þess að það er svo mikið af eldfjöllum á íslandi að snjórinn bráðnar alltaf af götunum?
- Er flugvöllur á Íslandi?
- Vá ertu frá Íslandi, það er rétt hjá Ástralíu er það ekki?
- Sagt við Gerði : do you have mountains in Iceland? I like yours!
þetta er bara þær spurningar sem ég man í augnablikinu.
23. október 2007 klukkan 11:03
magnús Barðdal
magnús Barðdal