Oktober fest 2007
Eins og ég sagði í síðasta bloggi þá var það verkefni helgarinnar að leggja land undir fót og skella sér í Munchen á Oktober fest, sem við gerðum. Og hér kemur ferðasagan.
Um hádegi á Fimmtudegi komu krakkarnir á VW Golf sem við leigðum og náðu í okkur hin og var ekkert að vanbúnaði en að leggja í hann á vit ævintýranna. Það var ekki leiðinlegt að sitja í bíl á 180 km. hraða og fylgjast með alvöru bílunum þeysa fram úr okkur og gjörsamlega hverfa úr augnsýn. Ferðin til Munchen gekk bara vel fyrir sig og náði ég mynd af þessum líka fína húsbíl sem við ókum fram hjá á hraðbrautunum og hann hafði rautt logandi ljós í framrúðunni. Ég komst fljótlega að því að þarna væri um þjónustustarfsemi að ræða fyrir þreytta karlkyns ökumenn sem vildu hressa sig við í amstri hraðbrautanna.


Þegar við komum loksins á leiðarenda eftir 9 tíma akstur beið okkur gisting hjá vinkonu okkar Christiunu, við leituðum lengi að götunni því við fundum hana hvergi á kortinu sem við höfðum. Ástæðan fyrir því var einfaldlega vegna þess að hún býr á stað þar sem allir hættulegustu glæpamenn suður Þýskalands eru geymdir og voru rimlar fyrir öllum gluggum og þessi staður er ekki settur á kort. Þegar við komum inn í herbergið hennar var það svo lítið að ekki var hægt að hýsa 5 gesti þannig að ég og félagi minn frá Bifröst sem var í heimsókn tókum það að okkur að gista í bílnum. Jebb ég og samkynhneigður félagi saman í VW golf á bílastæði þar sem hættulegustu glæpamenn S-Þýskalands eru geymdir. Ég gat nú ekki annað en hugsað til móður minnar á þessari stundu og hversu feginn ég var að hún vissi ekki hvernig ástandið á syni hennar væri þessa helgina. En þetta blessaðist nú allt og áttum við félagarnir 3 dásamlegar nætur saman í bílnum okkar góða. Október fest var GEÐVEIK ég hef aldrei upplifað aðra eins helgi. Þarna voru svakalegustu tívolí tæki sem ég hef séð og farið í, en það var ekki það besta, þarna voru mörg risa tjöld sem hýstu mörg þúsund manns hvert. Við fórum inn í eitt á föstudeginum, um 2 leytið og ég trúði því ekki að klukkan væri aðeins 4 þegar ég leit á klukkuna 2 tímum og nokkrum risa bjórum síðar. Þetta var eins og að vera í öðrum heimi, allir blindfullir eins og þjóðverjum einum er lagið en svo labbaði maður út og þar var bjartur dagur og ekki að sjá á einum manni. Á sunnudaginn var svo lagt í hann heim eftir erfiða helgi. Ferðin heim tók aðeins 11 eða 12 tíma því við sátum föst í umferð mjög lengi. Semsagt 5 manneskjur saman í golf, Magga ennþá full eftir að hafa týnst um nóttina og sofnað í lest, Gerður ælandi í poka eftir að hafa líka týnst um nóttina og við hin ekki svo spræk. En afsakið langt blogg en ég varð að koma þessu öllu frá mér. Setti inn myndir frá ferðinni góðu.
Á Oktober fest voru 6,7 milljón lítrar af bjór seldir. Held að ég eigi svona 50 lítra af því J
magnús Barðdal