Og þá hefjast æfingabúðirnar!!!

Já í gær horfi ég á þá ágætu kvikmynd Beerfest sem fyrir þá sem ekki vita gerist á Oktober-fest í Þýskalandi. Nema hvað að ég vaknaði upp við vondan draum þegar ég horfði á myndina... ÉG HEF NÁNAST EKKERT ÆFT MIG.... þetta hélt mér vakandi í næstum því 10 min. áður en ég fór að sofa og ákvað ég að fyrsta æfing verður á alvöru þýskum pub í kvöld!! Já á morgun er frí hjá öllum Þjóðverjum (eitthvað útaf Berlina múrnum sem var opnaður fyrr 10.000.000 árum síðan) þannig að það verður hörku partý í kvöld og ætla ég að nota það sem fyrsta kvöld í alvöru æfingar.
En sumir hlutir breytast seint, þegar ég var búinn að blogga síðasta blogg fékk hringingu frá Íslandi og það var móðir mín.. hún hafði lesið sér til um fyrirætlanir mínar að keyra til Munchen á Oktober fest og hún sagði " er það nokkuð sniðugt, ég skal frekar bara borga undir þig í lest þangað..." já eins og ég segi þá breytast sumir hlutir seint. hahaha. en áætluninni um að keyra verður víst ekki breytt úr þessu þannig að eftir 1 dag og nokkra klukkutíma leggjum við á stað í svakalegt ferðalag sem verður ógleymanlegt (á góðan veg vona ég)
En það gæti vel verið að ég bjóði myndavélinni með á djammið í kvöld og hef þá nýjar myndir á morgun.

í lokin skellti ég inn link á myndband sem ég ætla að tileinka félaga mínum, honum Davor

http://youtube.com/watch?v=fmW0dHUWQwE

bless í bili :)
02. október 2007 klukkan 15:00
magnús Barðdal
Bryndís Lilja skrifar ...
úff, þessar æfingabúðir verða náttúrulega bara PAIN fyrir þig...:)

Góða skemmtun á Oktober-fest :)
02. október 2007 klukkan 23:33
Aron skrifar ...
uss drengur þú ert ekki í neinu formi, þú ert frekar kærulaus með þessar æfingar á síðustu stundu.
hahaha þetta myndband er snilld, ég er ekki í vafa um að Davor eigi eftir að hafa samband við þig eftir að hafa séð þetta.
Annars vorum ég og davor á gettu bifröst í kvöld og unnum 4 bjóra, davor datt í lukkupottinn þar sem að ég drekk nú ekki bjór. En hann var meiri kelling en ég hélt og gaf söndru og stelpu sem að heitir Ingunn (sem að býr með okkur í bollakoti) bjóranna.
03. október 2007 klukkan 01:01
sesselja skrifar ...
sæll
hahahh ég fyndið með mömmu alveg ekta hún:) hahah
en góða skemmtun á oktoberfest,
vildi bara kvitta
kv sessa
03. október 2007 klukkan 19:26
Davor skrifar ...
ég er brjálaður, að þú skulir dirfast að halda því fram að ég sé loðinn á bakinu, Gaurinn sem að var með loðna bakið var með RAUTT hár.
Eins og venjulega ´þá er ekki hægt að taka mark á því sem að aron segir, enda elskar hann að krydda sögur. Mundu að æla í klósetið en ekki á rúmið eins og síðast. Sattu þig ættinni þinni til sóma á þessari októberfest.
Þinn "vinur"
Davor hinn hárlausi á baki
03. október 2007 klukkan 20:58
Margrét skrifar ...
Góða skemmtun á októberfest og farið nú varlega í akstrinum =)
04. október 2007 klukkan 11:56

Skrifa athugasemd

Könnun

Eru rauðhærðir Karlmenn yfirburða fallegri en aðrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur