Komnar fyrstu myndirnar

Jæja þá er ég búinn að setja fyrstu myndirnar inn og þið finnið þær með því að ýta á myndir og svo Þýskaland. Það er allt gott að frétta af mér, það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í þýsku námskeiðinu og svo hefur maður kíkt á pubbana öðru hverju til að athuga hvort ekki sé allt með feldu þar. Erum nokkurnveginn búinn að ákveða að leigja okkur bíl næsta fimmtudag og renna til munchen á OCTOBER-FEST sem verður geðveigt. ferðin tekur ekki NEMA 6 klukkutíma og hef ég fengið það verk að keyra, sem verður ekki leiðilegt á hraðbrautunum hér held ég. En planið er að leggja af stað á fimmtudag og koma aftur á sunnudaginn. Hef kannski ekki frá mörgu að segja í augnablikinu, nema að ég setti inn myndir af íbúðinni og nokkrar myndir frá Hamburg og eitt kvöld frá djamminu hjá okkur skiptinemunum. endilega segiði mér e-ð slúður frá Íslandinu, maður verður að fylgjast með öllu.
kveð í bili-  Maggi.
28. september 2007 klukkan 13:40
magnśs Baršdal
sesselja og mamma skrifar ...
sæll elsku bróðir og gaman að lesa og sjá myndir frá germany þetta er nú meiri stigagangurinn þarna hahah og klósettið er hrein snild hhah
ég var að lesa bloggið með mömmu og hún var að skoða myndirnar henni leist nú ekkert á að þú værir að fara að keyra þarna úti, ÓLI var sko búinn að segja að umferðin væri alveg brjáluð og hún ætlar að hringja í þig hhahhah,,,,, ég sagði ekki neit þú veist hvernig þetta er hahah
en hafðu það samt gott,
p.s ég vona að þú getir komið til dk milli 16 og 22 okt
bless í bili sesselja og mamma
28. september 2007 klukkan 17:12
Aron skrifar ...
gaman að sjá myndir þarna frá þýskalandi.
6 tíma keyrsla er nú ekkert rosalegt, örugglega líka bara gaman að fara í svona smá roadtrip í þýskalandi.
já viltu slúður, ég og davor fóru
29. september 2007 klukkan 19:39
Aron skrifar ...
úps ýtti óvart á enter, segji þetta þetta bara seinna
29. september 2007 klukkan 19:39
Maggi skrifar ...
Vil þakka Aroni fyrir allsvakalegt slúður. það liggur við að maður fái bara heimþrá þegar maður fær svona sögur beint í æð. Takk Aron, þú og Davor eruð nú meiri kallarnir.
02. október 2007 klukkan 14:36

Skrifa athugasemd

Könnun

Eru raušhęršir Karlmenn yfirburša fallegri en ašrir karlmenn?

Auglżsing

Innskrįningar kubbur