ÍLLU ER BEST AF LOKIĐ
Jæja nú er þessu blessaða prófaviku (lokapróf) að klárast, ég fer í síðasta prófið mitt eftir klukkutíma og er það munnlegt próf í lögfræði. ég ákvað að hætta að læra fyrir það núna og reyna gera e-ð til að minnka stressið. En kvöldið er það sem ég er að bíða eftir (fyrir utan helvítis prófið) þá er próflokadjamm á Hreddanum. En 2 vörubílstjórar ætla að koma við hér hjá mér og taka þátt í gleðinu, jú Gunnar Smári og spandex kvikindið ætla að koma og djamma með okkur hér. Kvöldið byrjar í betri stofuni á vistinni en þá ætlum við vistarfólkið að elda læri og tilheyrandi. Eftir það hittast allir saman í skólanum í grímubúningum hér í skólanum því það er grímuball á Hreddanum um kvöldið og í skólanum verður ólimpíuleikar ölvaðra og léttar veitingar í boði skólafélagsins ;-) svo verður haldið á hreddan og dansað og djammað framm eftir morgni. þetta er skotheld dagskrá og sé ég fram á gott kvöld. að sjálfsögðu verð ég með mindavélina og reyni að ná þessu á filmu öllu saman. svo er það fjörðurinn fagri á morgun þar sem ég ætla að vera um helgina. en eins og ég segi þá koma inn myndir í næstu viku.
23. mars 2007 klukkan 15:47
magnús Barđdal
magnús Barđdal