stórgóð skemmtun
jæja ég skrapp í borg óttans í gær (Föstudagur) og fór ég á Skagfirðingakvöld í Players sem var alveg stórgóð skemmtun þótti mér. En það var nú ekki minna veldi á mér en það að ég gisti bara á Hóteli í nótt, en tengdó splæsti á mig og Rannveigu svona síðustu nóttina áður en hún fer út í útlandið stóra. Ég setti inn myndir frá kvöldina hér á síðuna og getið fundið þær undir linknum "myndir á fotk" hér uppi í hægra horninu. það er ekki margt að segja frá þessu góða kvöldi nem ég fór til Ragnars á Flókagötuni og má segja að ég hafi ekki verið einn míns liðs því það var húsfyllir hjá honum og var fólk í öllum álmum í húsinu. Eftir að hafa verið þar við fallegan undirleik Eymars og söng gestanna fórum við á Players þar sem heitustu bönd landsins léku undir dansi. hef ekki frá mörgu fleira að segja nema að ég er mættur á Bifröst og þykist vera að læra því það er að bresta á próf-hátíð hér og best að vera klár í slaginn.kveðja Maggi með 100% rautt hár.
03. mars 2007 klukkan 22:27
magnús Barðdal
magnús Barðdal
Takk fyrir kvöldið karl minn.