I´m back baby...
Jæja nú er best að fara reynan blogga eitthvað aftur svo maður fái nú ekki á sig nöfn eins og Frímann eða e-ð álíka slæmt. En staðan á mér er nú bara sú að ég er á fullu í skólanum og nú er að koma sá tími á önnini að maður þarf að fara í bretta upp ermar og lesa úr sér augun. Ég hef annars verið nokkuð duglegur að fara heim um helgar núna upp á síðkastið, ég verð að nýta tíman til að vera með konunni, en hún er að yfirgefa mig næstu helgi því húner að fara skoða heiminn og áætlar sér 2 mánuði í það með Svölu vinkonu sinni. En ég ætla ekki að starta þessari blogg vertíð minni með meiri látum og skrifa meira næst sem verður vonandi ekki eftir langan tíma.Barðdalinn kveður að sinni.
26. febrúar 2007 klukkan 21:59
magnús Barðdal
magnús Barðdal