og þá hefst gamanið!
Jæja nú er ég kominn aftur á Bifröst eftir helgarfrí á Sauðárkróki, og nú á morgun hefst þetta fyrir alvöru. Sem er nú bara gott. Ég fékk far með honum Bjössa kallinum, því bíllin minn keyrir ekki heill til skógar eins og maðurinn sagði. en þegar ég og Bjössi vorum að detta í Víðihlíð þá fengum við bláu skelfilegu ljósin á okkur, og það voru lögreglu félagar tveir á ferð og þótti þeim Bjössi vera flýta sér full mikið, þannig að þeir gáfum honum væna segt og báðu hann að fara sér hægar, sem hann gerði.En núna í vikunni sem er að hefjast þarf ég að finna mér eitthvað sniðugt land sem ég ætla að fara í skiptinám til næsta haust, þannig að það er bísna spennandi, eins og staðan er á mér í dag er ég að velta því fyrir mér að sækja um til Grikklands eða Ítalíu, en ég á eftir að kynna mér þetta betur. hef nú ekki frá mörgu að segja í bili, kem með flotta fréttir næst.
kveðja maggi
kveðja maggi
08. janúar 2007 klukkan 06:43
magnús Barðdal
magnús Barðdal