þá er það að bresta á....

já núna er nákvæmlega 78 mínútur þangað til fyrsta prófið byrjar, og ég get ekki annað en sagt að ég er orðin nett stressaður, sem er samt engin ástæða til því í versta falli fell ég bara, verri hlutir hafa nú gerst. En að sjálfsögðu er það ekki á stefnuskránni Hlæjandi. já ég verð í prófum núna fram á fimmtudag og þá hefst gleðin félagi.... ég er búinn að fá Hreddann (Hreiðarvatnsskálan) og er verið að græja tilboð á barnum og læti, svo er það bara senda póst á allan skólan (bókstaflega allan) og bara partý... þetta verður geðveigt. Föstudagurinn er nú engin venjulegur dagur, þjóðarhátið myndu sumir segja, en fyrir 21 ári síðan kom í heiminn drengur svo rauður og fagurSvalur. Og þá er það Víðihlíð 7 í Skagafyrði sem verður fyrir valinu sem samkomustaður villtra Gargólýta og purrandi Bling-Bling vitleysinga, ásamt fleirum hátíðargestum. þannig að gott fólk sem mig þekkja og þykir vænt um takiði föstudaginn frá (ykkur verður boðið vill enga party crashers).

bestu kveðjur í bili.

20. nóvember 2006 klukkan 18:20
magnús Barðdal
kiddi skrifar ...
gangi þér vel í prófunum drengs og við sjáumst á föstudaginn.

raggi rósavínið á klósettinu er ekki til drykkju og ef að klósettpappír er ekki til þá skelliru þér bara í sturtu.

good times :)
20. nóvember 2006 klukkan 18:51
maggi skrifar ...
já ég vil ekki þurfa að splæsa í nýtt klósett aftur....
20. nóvember 2006 klukkan 18:56
sesselja skrifar ...
hæ !! vildi bara segja gangi þer vel í prófunum og vildi oska að eg gæti komið í partý til þín það verður ábyggilega mjög gaman heyri í þer um helgina
kv sesselja
21. nóvember 2006 klukkan 00:16
kiddi skrifar ...
já kallinn kom bara slakur á eyrina daginn eftir og lét selja sér dýrasta klósettið og greiddi þetta bara með beinhörðum. þetta var á þeim tíma þegar útriðinn var að sanna sig hjá honum svenna siffa, hann tók barðdalinn og seldi honum klósett með krómaðri setu...
rosalegt alveg.
21. nóvember 2006 klukkan 04:34
Margrét H skrifar ...
Vildi líka bara óska þér góðs gengis í prófunum =) Þú massar þetta =)

Kv, Margrét
21. nóvember 2006 klukkan 16:32
maggi skrifar ...
já það er rétt hjá þér Kiddi, maður fer ekki á eyrina skel þunnur á föstudagsmorgni til að kaupa venjulegt klósett, nei það vara bara splæst í gullsetuna og með demants "sturtuniður takkanum", en þetta verður massa game á föstudaginn.
og takk Margrét, byð að heilsa í danaveldi.
21. nóvember 2006 klukkan 17:07
Björn m skrifar ...
Dem, ég les þetta með tárin í augunum alveg. Læt að öllum líkindum í mér heyra á föstudaginn. Annars vona ég bara að þér gangi vel í prófunum. Eða eins og daninn segir: God eksamenslyst.
Bið að heilsa í skagafjörðinn...
kveðjur héðan.
22. nóvember 2006 klukkan 14:21
Raggi skrifar ...
Kiddi þú aumingi og hálviti!!!

En eins og ég alla tíð haldið fram þá kom ég ekki nálægt því að brjóta þetta andskotans klósett!

Kiddi farðu svo að nota klósettið heima hjá þér!

En Maggi... djös agalega verður drukkið á föstudaginn jemen eini!

Björn DK er ekki gott nema í 5 daga í senn, farðu bara að drífa þig heim á klakkann!
22. nóvember 2006 klukkan 17:08
maggi skrifar ...
ok. Raggi ég gef þér að njóta vafans í "stóra klósetmálinu" en já 3 dagar í superdjamm....
22. nóvember 2006 klukkan 17:44
kiddi skrifar ...
raggi chillaðu maður... engin ástæða fyrir einhverjum sorakjafti :)
24. nóvember 2006 klukkan 18:26

Skrifa athugasemd

Könnun

Eru rauðhærðir Karlmenn yfirburða fallegri en aðrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur