Já ég hef oft verið sagður gleyminn maður, en ég er að standa mig að verki að ég bara gleymdi að ég er með blogg síðu

já svona getur maður verið utan við sig í amstri námsins, en núna er semsagt farið að líða að prófum svoleiðis að ekki léttist þetta alveg strax en það styttist. ég var líka að skoða próftöfluna og ég er búinn í prófum 23. nóv sem er dagurinn á undan 24.nóv og allir glöggir menn vita nú hvaða hátíðardagur það er. svoleiðis að þið megið búast við allsvakalegu partý um þá helgina bæði í Bifröst og Víðihlíð 7. ALVEG SVAKALEGT!!! en það er ekki frá mörgu að segja nema ég fór í borg tækifærana í gær og fór í Hæstarétt (maður verður að skoða tilvonandi vinnustaðinn

) það hafði reyndar ekki hátt skemmtanagildi en fróðlegt samt sem áður. ég ætla að reyna muna að ég hafi blogg í framtíðinni og vera duglegri að bulla eitthvað.
Barðdal kveður.