22janúar

wazz´going on.....

Jæja kominn tími til að láta vita hvað hefur drifið á daga mína síðastliðnar vikur. Tja hvar skal byrja, ég kom heim frá Þýskalandi rétt fyrir jól með söknuð í hjarta enda hef ég ekkert nema gott frá þjóðverja landinu að segja. Nú er ég kominn upp á Bifröst og er vægast sagt brjálað að gera... sem er bara gott því manni leiðist ekki á meðan. Síðastliðna helgi fór ég heim á krók með það eitt í huga að taka og viðra fjórhjólið í snjónum. sú ferð var góð að mestu leiti nema að ég endaði upp á sjúkrahúsi eftir hana með brotna hendi sem er ekki alveg jafn gott... en breytir því ekki að þetta var góður dagur í fyrðinum fagra. Það sem er mér eftst í huga þessa daga er námið og skrif á BS ritgerð sem nálgast hraðar en maður gerir sér grein fyrir og ekki mikið eftir af þessarri skólagöngu minni hér í Bifröst (í bili allavega) nú er bara að klára það littla sem eftir hér í Borgarbyggð og svo tekur lífsins skóli við. hef kannski ekki frá mörgu að segja í bili, en ég mæli endilega með að fólk kíkji inn á vistin.bloggar.is og lesi síðustu færslu sem Aron gerði um helgina.
Bless í bili.
22. janúar 2008 klukkan 16:07
magnús Barđdal
Engin athugasemd
08janúar

Villa í kerfi

ÞVÍ MIÐUR HEFUR ÞESSARI SÍÐU VERIÐ LOKAÐ TÍMABUNDIÐ VEGNA YFIRGNÆFANDI LETI AF HÁLFU VEFSTJÓRA EÐA INNANTÓMU LÍFERNI AÐ HANS HÁLFU!!!!!!! EF FRÁSÖGUFÆRANDI FRÉTTIR VERÐA Á HANS VEGI VERÐUR ÞETTA HANS FYRSTI STAÐUR TIL AÐ BIRTA ÞÆR.
STJÓRNIN

08. janúar 2008 klukkan 19:18
magnús Barđdal
Engin athugasemd
17desember

Allt gott tekur sinn endi

Jæja þá er síðasta vikan mín hér í Þýskalandinu runnin upp. Á föstudaginn 21. desember á ég pantað flug heim á klakann. Nú á ég bara eftir að pakka saman dótinu mínu, skila af mér einni ritgerð og fara í lokapróf fyrir föstudaginn, þannig að það er nóg að gera síðustu daganna hér í Luneburg. Að sjálfsögðu reynir maður að skipuleggja tíman þannig að maður nái einu kvöldi enn með köldum þýskum bjór.
Jæja hef ekki frá mörgu að segja á svona sorgarstundu nema að sjálfsögðu að það verður gott að koma heim í jólasteikina hjá mömmu gömlu og hitta familiíuna.

Jólakveðjur Magnús
17. desember 2007 klukkan 09:20
magnús Barđdal
2 athugasemdir
29nóvember

Nćstum ţví ţrítugur í Germany

Jæja, kominn tími til að láta heyra frá sér. Ég náði þeim merka áfanga að vera 22 ára á síðasliðnum laugardegi.. og það er nú ekki svo lítið.. en ég læt það nú ekki spyrjast úr að ég eigi afmæli án þess að halda upp á það. Ég bauð rétt rúmlega 30 manns frá 11 mismunandi löndum í veisluna þar sem ég bauð upp á fljótandi kvöldmat og eftirrétt í skotglösum. Fólkið kom stundvíslega klukkan 8 eins og þeim var sagt ( sem er mjög ólíkt íslendingum) ég hafði ákveðið það að við þyrftum að vera farinn út kl. 12 í síðastalagi þar sem ég bý í fjölbýlii og eru nágrannarnir með gott jafnaðargeð ALLTAF Í VONDU SKAPI!!! en það breyttist víst aðeins og var ég að skríða í bæinn rúmlega 3 um nóttina. En veislan tókst vel fyrir utan að nágrannakona mín kom út í glugga um nóttina þegar gestirnir stóðu fyrir utan og ræddu um heimsmálin og skvetti vatni á þá líkt og um flækings ketti væri um að ræðaHissa en það var nú bara fyndið (eins og flest annað á þessari stundu)
Hef ekki frá mörgu að segja nema að það styttist óðum í að maður haldi aftur til heimalandsins í jólastemminguna, sem verður mjög gaman.
hér eru myndir frá afmælinu MYNDIR
29. nóvember 2007 klukkan 15:13
magnús Barđdal
7 athugasemdir
08nóvember

Berlinarferđin

Jæja síðasliðna helgi fór ég ásamt skiptinemunum í helgarferð til Berlin. Það var mjög gaman að sjá leyfarnar frá stríðinu og heyra söguna af Berlin og öllu því sem gekk á þar. Ég setti inn myndir, og eru þær frá múrnum, neðanjarðar skýli (banker), gömlu fangelsi og að sjálfsögðu djamminu :) læt myndirnar tala fyrir mig í þetta skiptið :

Smellið hér : MYNDIR
08. nóvember 2007 klukkan 14:22
magnús Barđdal
7 athugasemdir
30október

Becks verksmiđjan



Jæja á Laugardaginn fór ég í Becks verksmiðjuna, það var helv... gaman að sjá hvernig bjór er gerður og ég er ekki frá því að eftir að ég veit hversu mikil vinna er lögð í þennan líka einstaka drykk þá bragðast hann bara betur Brosandi. Þegar við komum heim frá Bremen þar sem Becks verksmiðjan er lág leiðin á Írska barinn hér í Luneburg þar sem þyrstir skyptinemarnir voru samankomnir. Á sunnudaginn vaknaði ég eldhressSaklaus til að fara til Hamburg og taka á móti mömmu og pabba, vð vorum allan daginn í Hamburg, sem var mjög gaman (sérstaklega afþví að allar búðir voru lokaðar). Mamma og pabbi voru svo hjá mér í 3 daga og ég held að þau hafi nú bara verið nokkuð sátt við dvölina, svona fyrir utan það að við bjóðum ekki upp á heitt vatn þessa stundina, en ég meina hver þarf heitt vatn. Þau fóru svo til Kaupmannahafnar í morgun þar sem þau ætla að hitta Selmu.
Á morgun er svo Halloween, og verður svaka partý um allan bæ, það verður alveg geðveikt, er reyndar ekki alveg búinn að ákveða búningin, er að hugsa um að vera írskur drykkjusjúklingur Glottandi.

En það er nú reyndar ekki mikið að frétta af mér.
setti inn myndir frá Becks og Írska barnum hér : MYNDIR
30. október 2007 klukkan 10:52
magnús Barđdal
3 athugasemdir
23október

Við systkinin
Jæja þá er víst kominn tími á að láta vita hvað maður er að gera að sér hérna í útlandinu. Á fimmtudaginn fór ég ásamt fylgdarkonum 2 til Danmerkur þar sem ég heimsótti Óla bróðir og frú og hitti Sesselju systir sem var í heimsókn, ásamt að sjálfsögðu að hitta Möggu frænku og Helga. Þetta var alveg ljómandi menningarferð og mjög gaman að hitta fólkið. Ég set myndir inn frá DK. við fyrsta tækifæri.
það sem er framundan er nokkuð margt, á laugardaginn fer ég í bæ hérna rétt hjá sem heitir Bremen og er ég að fara í BECKS verksmiðjuna, það er nú lágmark að maður fái að sjá hvernig lifibrauðið sitt er búið til Glottandi.
Á sunnudaginn koma svo mamma og pabbi í stutta heimsókn, og verður það mjög gaman að geta sýnt þeim hvernig maður býr. Búinn að splæsa í upplásið king size hjónarúm þannig að dvölin í Spangenbergstrasse 29 verður betri en nokkuð hótel. Þetta er semsagt það sem er á stefnuskránni fyrir næstu viku, svo er ég búinn að bóka ferð til Berlin í næsta mánuði og fæ ég þá að sjá það sem eftir er af verkum nastistana. En allavega er allt gott að frétta frá Luneburg í þýskalandi (þó það sé að kólna). þannig að ég hef ekki mikið að segja í bili.
bless í bili.


Nokkrar heimskulegar spurningar sem ég hef fengið frá Þjóðverjum um Ísland :
- Er það satt að vegna þess að það er svo mikið af eldfjöllum á íslandi að snjórinn bráðnar alltaf af götunum?
- Er flugvöllur á Íslandi?
- Vá ertu frá Íslandi, það er rétt hjá Ástralíu er það ekki?
- Sagt við Gerði : do you have mountains in Iceland? I like yours!
þetta er bara þær spurningar sem ég man í augnablikinu.
23. október 2007 klukkan 11:03
magnús Barđdal
7 athugasemdir
09október

Oktober fest 2007

Eins og ég sagði í síðasta bloggi þá var það verkefni helgarinnar að leggja land undir fót og skella sér í Munchen á Oktober fest, sem við gerðum. Og hér kemur ferðasagan.

Um hádegi á Fimmtudegi komu krakkarnir á VW Golf sem við leigðum og náðu í okkur hin og var ekkert að vanbúnaði en að leggja í hann á vit ævintýranna. Það var ekki leiðinlegt að sitja í bíl á 180 km. hraða og fylgjast með alvöru bílunum þeysa fram úr okkur og gjörsamlega hverfa úr augnsýn. Ferðin til Munchen gekk bara vel fyrir sig og náði ég mynd af þessum líka fína húsbíl sem við ókum fram hjá á hraðbrautunum og hann hafði rautt logandi ljós í framrúðunni. Ég komst fljótlega að því að þarna væri um þjónustustarfsemi að ræða fyrir þreytta karlkyns ökumenn sem vildu hressa sig við í amstri hraðbrautanna.

Hórubíllinn

Þegar við komum loksins á leiðarenda eftir 9 tíma akstur beið okkur gisting hjá vinkonu okkar Christiunu, við leituðum lengi að götunni því við fundum hana hvergi á kortinu sem við höfðum. Ástæðan fyrir því var einfaldlega vegna þess að hún býr á stað þar sem allir hættulegustu glæpamenn suður Þýskalands eru geymdir og voru rimlar fyrir öllum gluggum og þessi staður er ekki settur á kort. Þegar við komum inn í herbergið hennar var það svo lítið að ekki var hægt að hýsa 5 gesti þannig að ég og félagi minn frá Bifröst sem var í heimsókn tókum það að okkur að gista í bílnum. Jebb ég og samkynhneigður félagi saman í VW golf á bílastæði þar sem hættulegustu glæpamenn S-Þýskalands eru geymdir. Ég gat nú ekki annað en hugsað til móður minnar á þessari stundu og hversu feginn ég var að hún vissi ekki hvernig ástandið á syni hennar væri þessa helgina. En þetta blessaðist nú allt og áttum við félagarnir 3 dásamlegar nætur saman í bílnum okkar góða. Október fest var GEÐVEIK ég hef aldrei upplifað aðra eins helgi. Þarna voru svakalegustu tívolí tæki sem ég hef séð og farið í, en það var ekki það besta, þarna voru mörg risa tjöld sem hýstu mörg þúsund manns hvert. Við fórum inn í eitt á föstudeginum, um 2 leytið og ég trúði því ekki að klukkan væri aðeins 4 þegar ég leit á klukkuna 2 tímum og nokkrum risa bjórum síðar. Þetta var eins og að vera í öðrum heimi, allir blindfullir eins og þjóðverjum einum er lagið en svo labbaði maður út og þar var bjartur dagur og ekki að sjá á einum manni. Á sunnudaginn var svo lagt í hann heim eftir erfiða helgi. Ferðin heim tók aðeins 11 eða 12 tíma því við sátum föst í umferð mjög lengi. Semsagt 5 manneskjur saman í golf, Magga ennþá full eftir að hafa týnst um nóttina og sofnað í lest, Gerður ælandi í poka eftir að hafa líka týnst um nóttina og við hin ekki svo spræk. En afsakið langt blogg en ég varð að koma þessu öllu frá mér. Setti inn myndir frá ferðinni góðu.

Á Oktober fest voru 6,7 milljón lítrar af bjór seldir. Held að ég eigi svona 50 lítra af því J

09. október 2007 klukkan 07:49
magnús Barđdal
8 athugasemdir
02október

Og ţá hefjast ćfingabúđirnar!!!

Já í gær horfi ég á þá ágætu kvikmynd Beerfest sem fyrir þá sem ekki vita gerist á Oktober-fest í Þýskalandi. Nema hvað að ég vaknaði upp við vondan draum þegar ég horfði á myndina... ÉG HEF NÁNAST EKKERT ÆFT MIG.... þetta hélt mér vakandi í næstum því 10 min. áður en ég fór að sofa og ákvað ég að fyrsta æfing verður á alvöru þýskum pub í kvöld!! Já á morgun er frí hjá öllum Þjóðverjum (eitthvað útaf Berlina múrnum sem var opnaður fyrr 10.000.000 árum síðan) þannig að það verður hörku partý í kvöld og ætla ég að nota það sem fyrsta kvöld í alvöru æfingar.
En sumir hlutir breytast seint, þegar ég var búinn að blogga síðasta blogg fékk hringingu frá Íslandi og það var móðir mín.. hún hafði lesið sér til um fyrirætlanir mínar að keyra til Munchen á Oktober fest og hún sagði " er það nokkuð sniðugt, ég skal frekar bara borga undir þig í lest þangað..." já eins og ég segi þá breytast sumir hlutir seint. hahaha. en áætluninni um að keyra verður víst ekki breytt úr þessu þannig að eftir 1 dag og nokkra klukkutíma leggjum við á stað í svakalegt ferðalag sem verður ógleymanlegt (á góðan veg vona ég)
En það gæti vel verið að ég bjóði myndavélinni með á djammið í kvöld og hef þá nýjar myndir á morgun.

í lokin skellti ég inn link á myndband sem ég ætla að tileinka félaga mínum, honum Davor

http://youtube.com/watch?v=fmW0dHUWQwE

bless í bili :)
02. október 2007 klukkan 15:00
magnús Barđdal
5 athugasemdir
28september

Komnar fyrstu myndirnar

Jæja þá er ég búinn að setja fyrstu myndirnar inn og þið finnið þær með því að ýta á myndir og svo Þýskaland. Það er allt gott að frétta af mér, það er búið að vera brjálað að gera hjá mér í þýsku námskeiðinu og svo hefur maður kíkt á pubbana öðru hverju til að athuga hvort ekki sé allt með feldu þar. Erum nokkurnveginn búinn að ákveða að leigja okkur bíl næsta fimmtudag og renna til munchen á OCTOBER-FEST sem verður geðveigt. ferðin tekur ekki NEMA 6 klukkutíma og hef ég fengið það verk að keyra, sem verður ekki leiðilegt á hraðbrautunum hér held ég. En planið er að leggja af stað á fimmtudag og koma aftur á sunnudaginn. Hef kannski ekki frá mörgu að segja í augnablikinu, nema að ég setti inn myndir af íbúðinni og nokkrar myndir frá Hamburg og eitt kvöld frá djamminu hjá okkur skiptinemunum. endilega segiði mér e-ð slúður frá Íslandinu, maður verður að fylgjast með öllu.
kveð í bili-  Maggi.
28. september 2007 klukkan 13:40
magnús Barđdal
4 athugasemdir

Könnun

Eru rauđhćrđir Karlmenn yfirburđa fallegri en ađrir karlmenn?

Auglýsing

Innskráningar kubbur